þriðjudagur, desember 23, 2008

Þorlákur í messu

Þann 23 desember fór Þorlákur í messu og bað um fyrirgefningu og að guð myndi hreinsa líkama hans af skötuni sem hann hafði "óvart" borðað. Skata sem legið hafði í eigin úrgangi um nokkra stund. Guð fyrirgaf honum en dæmdi hann samt til að hafa skötulyktina í nebbanum það sem eftir var til að minna á hversu góður og miskunarsamur hann væri. 23 desember er því haldin honum til....tja.... heiðurs....á hverju ári og hermt er eftir uppátæki hans og allir menn vonast eftir fyrirgefningu fyrir vitleysuna í sér. Þurfa því allir menn, saklausir jafnt sem þeir sem renna þessu niður með volgum bjór, að lykta af skötu hvort sem þeir vilja eður eigi á þessum degi.

Nei....ekki var það nú kannski þannig.....það var víst eitthvað í þessa átt

Þorláksmessa, sem er þann 23 desember, er haldin til minningar um Þorlák hin helga Þórhallsson biskup í Skálholti. Hann lést 23. desember 1193 og var þessi messudagur tekinn upp honum til heiðurs og lögleiddur 1199.

Jóhannes Páll páfi II útnefndi Þorlák verndardýrling Íslands með tilskipun 14. janúar 1985 og er hann um leið verndari Kristskirkju í Reykjavík. Þorlákur er eini íslenski dýrlingurinn í kaþólskri trú sem hefur hlotið dýrlinganafnbót.

Á seinni tímum hefur Þorláksmessa orðið hluti af jólaundirbúningnum, en þennan dag eru margir að ljúka við að skreyta hús og híbýli og margir hafa þann sið að skreyta jólatréð á þessum degi. Á Þorláksmessu kvöld í Reykjavík fara flestir og ganga niður Laugarveginn.

Á Vesturlandi er vaninn að borða kæsta skötu á Þorláksmessu en sá siður hefur á síðustu árum orðið algengur um allt land. Hlín til mikillar mæðu. Sem betur fer er ég kvefuð í dag og með stútt fullt nef að gómsætara gumsi en þessi skata er. Hana nú og takk fyrir mig!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

H,H og H, bestu óskir um gleðileg jól og gott gæfuríkt komandi ár.
Takk fyrir að fá að fylgjast með hér á síðunni,guttinn er algjört æði.Gaman að lesa skrifin og svona líka fínir fróðleiksmolar.
Jólakveðja Ruth og co

Nafnlaus sagði...

uh
Eru þá kristnir menn að halda uppá afmæli Jesú þann 24.des þó hann hafi fæðst um vor OG uppá einhvern kaþólskan dýrðlíng 23.des þótt íslendingar séu upptilhópa ekki kaþólskir.

en enginn heldur uppá sólstöðurnar nema við!???!!!??!!

LYGI OG SVIK ALLTSAMAN

næst segið þið mér að það sé ekki til jólasveinn í rauðum stuttkyrtli, með hvítt skegg og svart leðurbelti!!!

kv.sigga sem heldur ekki heilög jól lengur.