Skruppum svo aðeins til Siggu og Jóa þar sem Húnbogi fekk að kenna á því sem koma skal en Hrafnkeli tókst að klemma putta hans milli þröskuldar og hurðar. Varð Húnbogi frekar sár og meiddi sig doldið en var fljótur að taka hann í sátt aftur.
Um kvöldið var svo skundað í afmæli til systur ömmu hans Helga. Komum loks heim um 10 leytið og var Húnbogi strax sendur í bólið á meðan ég slappaði af yfir aðventukransinum mínum.
Þann fyrsta desember varð svo mikil gleði hjá Húnboga þegar móðir hans kær fekk sér fyrsta súkkulaðimolan í hans nafni úr dagatalinu sem saumað var á meðgöngunni. Móðir hans kær ætlar nú að fara og fá sér annan í hans nafni.
1 ummæli:
já gullfallegur krans.
Svo þegar þið voruð farin þá klemmdi Hrafnkell á sér ristina á sömu hurð... so they are even now.
oghananú
kv.sigga
Skrifa ummæli