sunnudagur, desember 07, 2008

Jólahlaðborð

Ég og Húnbogi fórum í mosó að baka stórar piparkökur á föstudaginn. Gæðaprófunn á deiginu stóðst allar væntingar en til að vera alveg viss voru gerð nokkur þannig próf.
Niðurstaðan: namminamm.
Um kvöldið fór ég svo að passa Írenu sem nú er laus við rimmlarúmið og var mikið stríð háð á því heimili það kvöldið þar sem Írena kom alltaf fram aftur með meira og meira dót. Um 3 leitið sofnaði hún loks. Vona bara að mamman hafi fengið að sofa út því hún kom heim um 5.
Á laugardeginum lá leiðin svo aftur í mosó þar sem stóru piparkökurnar (sem höfðu fengið gæðastimpilinn namminamm) voru málaðar í næstum öllum regnboganslitum. Var svo Húnbogi bara skilinn eftir þar sem jólahlaðborð var í vinnu Helga um kvöldið. Þar var fullt af góðum mat eins og verða vill í svona hlaðborðum og svo var lagið tekið í karokí. Enduðum köldið á Players.
Í dag var svo að sjálfsögðu aðventukaffi í mosó þar sem kveikt var á kerti númer 2.
Eftir aðventukaffið var planið að taka aðeins til en....æ....ég nenni því ekki.

Engin ummæli: