mánudagur, desember 29, 2008

Áramótinn á næsta leyti

Þá eru jólinn enn eina ferðina búin. Allt of fljót að líða miðað við hvað tilhlökkuninn varir lengi.....finnst að það ætti að búa til 3ja í jólum og jafnvel þann 4ða. En það er í lagi.....enn eru áramótinn eftir og ekki má gleyma sjálfum þrettándanum.
Við héldum jólinn upp í Mosó með mömmu og pabba, Hlyni, Elínu og Írenu. Mamma var reyndar að vinna en hún kom rétt eftir átta. Þá vorum við búin að borða....biðum þolinmóð...eða ekki svo þolinmóð eftir að mamma kláraði því að svo átti að opna pakka....gaman gaman. Fengum margt og mikið, lítið og skrítið. Húnboga fannst þetta pakkavesen ekkert svo skemmtilegt og lagði sig bara. Enda var Írenda alltaf að taka af honum dótið. Svo þegar Írena fór að sofa vaknaði Húnbogi og fekk að leika sér einn. Eftir eftirrétt, jólakortalestur og kaffisopa, jólaölssopa í öðrum tilfellum var spilað catan langt fram á nótt. Vöktum Húnboga rétt eftir 2 og fórum heim að sofa.
Á jóladag fórum við svo á Álftanes í hádegismat. Þar var líka spilað en ekki langt fram á nótt. Fórum heim rétt fyrir 9 og horfðum á fyrsta hluta hringadróttinssögu.
Annan í jólum var svo farið í hádegismat upp í Mosó.

Þrátt fyrir allt fína dótið sem Húnbogi fékk í jólagjöf finnst honum enn skemmtilegast að taka til í dvd diskunum. Þeir fara nefnilega miklu betur niðri á gólfi og hillan er líka svo fín þegar hún er tóm og ekkert svona drasl í henni.

Fimmta tönnin læddi sér niður rétt fyrir jól. Tókum ekki einu sinni eftir henni fyrr en á jóladag og þá sást vel í hana. Sé móta fyrir þeirri 6 en hún er ekki kominn í gegn.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hafið það nú kósý í kvöld

Hrafnkell er sofandi eins og er... hleyp út og sussa á nágrannana af og til en þeir horfa bara asnalega á mig - dónalegt fólk

jeij

kv.sigga