fimmtudagur, janúar 01, 2009

2009

Þá er nýtt ár gengið í garð. Og þótt að mörgum hafi fundist þetta með erfiðari árum sem þeir hafa upplifað var það bara ansi fínt ár hjá mér. Við keyptum nýja íbúð, og fluttum inn í hana í Febrúar. Það var vegna þess að nýr fjölskyldu meðlimur var kominn og þurfti því stærra húsnæði.
Þessi nýji fjölskyldu meðlimur sem ég tala hér um er að sjálfsögðu hann Húnbogi Bjartur sem fæddist 17 Janúra. Lífið búið að snúast meira og minna um hann þetta árið.
Erfiðasta tímabilið á þessu ári var líklega þegar langafi hans Húnboga dó í apríl.
Um sumarið var svo haldið á víkingahátíð með frumburðinn í Hafnarfyrði. Engar utanlandsferðir voru þó farnar vegna hans. Fórum einnig á víkingahátíð á hestamannamótinu á Hellu en Húnbogi var þá fjarri góðu gamni í pössunn hjá afa og ömmu á Álftanesi.
Fall bankana tók svo við í október en sem betur fer áttum ég og Helgi engann péning til að missa. Lánin af íbúðinni hækkuðu svo að segja ekkert. Vinnumál Helga eru samt óljós og gæti farið að hann missi vinnuna mánaðarmótinn janúar febrúar. Ég aftur á móti er búin að fá vinnuna mína í Fjarðarkaup og byrja þar um leið og Húnbogi byrjar hjá dagmömmu.

Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar um jól og nýár:


Árlega systrajólamyndinn. Þemað þetta sinn: Vaxtaræktargaurar.


Írena og Húnbogi deila leikfangi sem hún fekk í jólagjöf.


Jólamaturinn hans Húnboga. Hið daglega grænmetismauk.


Jólagjafirnar oppnaðar.


Húnbogi mátar prjónajólagjafirnar sem hann fekk.


Húnbogi Þrumustrákur. Gamlársdagskvöld.


Klukkan 12 miðnætti. 2009



Nýársdagsmorgunn. 2009.

Gleðilegt nýtt ár.
Háin 3

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hrafnkell svaf bara á áramótunum ! Vaknaði ekki einusinni kl. 00.00 !!!

Hann fékk því ekki að sjá neinar rakettur þetta árið... nema kannski smá séns þann 6'ta, sjáum til.

Maður þarf að farað versla afmælisgjöf... mikið á mann lagt.

kv.sigga

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár systa.
Írena svaf einnig af sér áramótin, mér til gleði ;)