
Húnbogi Bjartur í fyrstu fötunum sem pössuðu næstum. nr 48
Fyrstu vikur þurfti að vekja hann á 3 tíma fresti til að drekka og vekjaraklukkan stillt á nóttunni því hann vakti mig ekki. Mikið sofið enda ennþá að jafna sig á gulunni og bara svo allt of lítill og veikburða.
28 febrúar sást hann brosa í fyrsta sinn. Bros hefur verið hans einkenni síðustu mánuði....alltaf svo hýr og góður. Hlós fyrst í byrjun maí.
Var farinn að halda haus um mánaðrmót mars, apríl. En mjög óstöðugt þó fram í maí.
Byrjaði í ungbarnasundi 24 maí.
Fékk fyrst graut. 25 maí. rísgrautur og perur.
Velti sér 9 júlí af baki yfir á maga....en varð ansi fúll því hann vildi alls ekki vera á maganum og gat ekki velt sér til baka.
Fyrsta tönnin kom 26 júlí
12 september sat hann hjálparlaust í fyrsta sinn.
Stóð upp í nóvember.
Byrjaði loks að skríða á 4 fótum síðustu helgi..... en hefur dregið sig um á maganum og orðinn mjög fimur í því síðustu mánuði.
Er kominn með 6 tennur og duglegur að nota þær.


Afmælisdagsmorgunn. Einu ári síðar og mikið vatn runnið til sjávar.....

Húnbogi fékk fullt af gestum og pökkum.

Og ekki vantaði gúmmelaðið. Elísabet gerði meistarastykkið á borðinu.

Og svo var sungið fyrir Húnboga og mikið borðað.
2 ummæli:
Okkur fannst voða gaman, Hrafnkeli fannst nýja dótið sem hann mun fá að leika með í framtíðinni - mjög flott.
Sumir fara bráðum að labba... þá ætlar Hrafnkell að kenna Húnboga ALLT sem er bannað og hvernig á að ná dóti sem Á að vera of hátt til að ná.
Hrafnkell sagði:
glelejó Úbbi*
*gleðileg jól Húnbogi
þetta er fín veisla og gómsætt gúmelaði..
svo fannst henni fannýu rosalega gaman að koma.. og sjá nýtt dót..
hehe.. :p
kv.guðný
Skrifa ummæli