þriðjudagur, janúar 13, 2009

Húnsafréttir

Húnbogi byrjaði í aðlögun hjá dagmömmu fyrir viku síðan. Mætti bara í hálftíma og grét aðeins þegar hann fattaði að ég væri farinn. Þá var hann búinn að vera að leika sér í 10 mínútur. Fór svo aftur næsta dag og þá var þetta sko ekkert mál...enda löngu búin að fá leið á mér. Var svo til hádegis á föstudeginum og á mánudaginn var hann allan daginn. Dagmamman segir að þetta sé eitt auðveldasta barn sem hún hefur fengið. Ákvað ég því að byrja að vinna í dag. 6 tönnin kom niður um helgina og hann er byrjaður að skríða á 4...... það er þegar hann kemur úr sitjandi stöðu eða er ekki að flýta sér allt of mikið. Mér finnst pínu skrítið að sjá það.....orðin svo vön hinu og bjóst eiginlega ekkert við að það kæmi nokkurtíman.

Ég vann frá 8 til 6 í dag....held að ég hefði þurft að fara í aðlögun líka.....úff hvað ég er þreytt.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

velkomin í harkið.

held að ég muni líka þurfa aðlögun þegar/ef ég fer að vinna.

sit á námskeiði akkúrat núna og er ekki búin að gleyma neinu sumsé:
ignora kennarann, skrifa athugasemdir á bloggsíðum og vera með stæla.

kv.sigga

Nafnlaus sagði...

Til lukku að vera komin á vinnumarkaðinn ;)

Nafnlaus sagði...

hahaha.. hí á þig bara... var kominn tími til að sjá þig aftur í harkinu...hehehe ;P
kv.guðný