Ég og Gudda fórum líka í dag og reyndum að gera garðinn frægan. Vorum aukaleikarar í smá senu í þáttum sem heitir rétturinn og er sýndur á stöð2.....allir fari og kaupi sér áskrift að stöð2.
Húnbogi er kominn með dagmömmu. Hún heitir Hulda og förum við til hennar í fyrramálið í smá aðlögun....bara hálftíma til klukkutíma. Þannig að ég fer bara að vinna í næstu viku. En áður en þangað er haldið verður slett aldeilis úr klaufunum og Akureyrarbær málaður því ég og Gudda ætlum að hitta gamla skólavinkonu sem býr þar.
Svo verður lífið tékkið alvarlega....ekkert nammi,gos eða skyndibita át.... (eða...bara í hófi). Ekkert bíó eða óþarfabruðl. Ég er nefnilega að spara fyrir sólarlandaferð í sumar og þar sem ég verð 30 þá finnst mér við hæfi að láta gamlan draum rætast áður en allt of mörg börn fara að þvælast fyrir og ég verð krumpótt. Allir sem vilja gefa mér 30 ára afmælisgjöf meiga gefa smá fyrirfram péning takk :) Enn og einu sinni erum það ég og Gudda sem erum að plana slíkt...... hún verður einnig 30 ára.

Sólin er flokkuð sem meginraðarstjarna sem að þýðir að hún er í vökvajafnvægi, þar sem að hún dregst hvorki saman né þenst út, og myndar orku við samruna vetniskjarna yfir í helín.
Talið er að Sólin hafi meginraðarlíftíma í kringum um 10 milljarða ára. Núverandi aldur hennar er talin vera í kringum 4,5 milljarðar ára. Var þessi aldur hennar reiknaður með því að nota tölvulíkan af þróun stjarna. Sólin er á sporbaug um Vetrarbrautina, í u.þ.b. 25.000 til 28.000 ljósára fjarlægð frá miðju hennar. Sólin klárar eina sporbaugslaga umferð á um 226 milljón árum.
Það sem Hlín (homo sapiens) leitar að í fari sólarinnar eru aðalega hinir útfjólubláu geislar hennar. Sólin sendir frá sér breitt róf rafsegulgeislunar. Útfjólubláa geislunin veldur sólbruna og eykur líkur á húðkrabbameini.
Áhrif útfjólublárrar geislunar á mannslíkamann eru þó ekki eingöngu skaðleg. Útfjólublá geislun örvar framleiðslu D-vítamíns í húðinni. Geislunin getur einnig haft læknandi áhrif á húðsjúkdóma svo sem psóriasis og exem. Útfjólublá geislun er þar að auki notuð til að sótthreinsa loft og vatn, þar sem hún drepur ýmsar óæskilegar örverur.
2 ummæli:
Ég hringdi og fékk talhólf og gafst þá bara upp... enda fór ég ekki á brennuna því að litli víkingurinn var hræddur við sprengjurnar.
Svo varstu sko ekki aukaleikari í Rétturinn heldur stadisti... ekki sadisti heldur stadisti... jafn mikilvæg og SÓFASETT.
... svo ertu krumpuð !
kv.sigga sem er pirruð yfir að verða 30 ára fyrst af ÖLLUM.
Skrifa ummæli