þriðjudagur, mars 17, 2009

allur að braggast og 8 tönninn kominn

Eftir viku veikindi er Húnbogi nú orðinn hress og fer til Dagmömmu á morgunn. Helgi fór með hann til læknis í gærmorgunn vegna hósta sem var ógurlegaljótur, og af því að hann togaði alltaf í eyrun. Alltaf gott að vera viss ef eitthvað er að.
Niðurstaðan hjá lækninum var öndunarfærasýking. Gaf lyfseðil fyrir fúkkalyfjum.
Öndunarfærasýking= kvef!!!
Húnbogi var orðinn hitalaus og allt.....
Mömmu minni fannst þetta ekkert sniðugt og sagði okkur ekki að gefa lyfin. Hann væri að vinna á þessu sljálfur, orðinn hitalaus og farinn að borða og drekka. Segir að læknar afgreiði oft (ekki allir) sjúklingana svona......fúkkalyf.
Afhverju gat hann líka ekki bara sagt að þetta væri kvef. Ég bara sjitt....hann er með öndunarfærasýkinu....sem hljómar einhvernvegin 1000 fallt verra en bara kvef.
Og nú eru mamma og pabbi líka kominn með öndunarfærasýkingu......

8 tönnin kom upp um helgina. Ábyggilega ekki bætt á ástandið hjá aumingja Húnsapúnsa. Hann vildi bara kúra og kúra og kúra svo aðeins meira.

1 ummæli:

ellapaunk sagði...

Alveg sammála múttu. Skil ekki því að gefa sýklalyf þegar barnið er byrjað að borða og er hitalaust. Ussumsvei

Írena mín hefur víst haft annsi oft ljótan hósta núna í vetur, en aldrei hita og ekkert slöp og því ekki farið til læknis sem afreiðir svona óþarfa...