Hún hélt upp á þau tímamót með pompi og prakt í gærkveldi og var boðið til útfararveislu með víkingaþema (og siggabest þema), kökum og drykjarveigum.
Veit ég um nokkra sem héldu þó að ekki væri um svo háan aldur að ræða, og urðu nokkuð hissa á að ekki væri verið að halda upp á 25 ára afmæli...sömuleiðis héldu þeir að ég væri á þeim aldri líka.
Hef ekkert nema gott um það að segja.
á góðri stund upp í Dverg......
Eftir gott partý í Dvergnum var farið í Reykjavíkursafarí og kíkt á villidýrinn. Ég komst að því að þau eru ekki bara villt heldur dónaleg lílka. Það er eins og þegar fólk er komið í glas þurfi það ekki að aðhafast þessar almennu umgangsreglur við annað fólk sem eru í gildi á öðurm tímum.
En hvað um það. Kom reynslunni ríkari heim og get hlegið að þessu. Og þar sem máltækið segir að hláturinn lengi lífið er ekki svo vitlaust að ætla að maður tóri kannski aðeins fram yfir 3tugt.
1 ummæli:
kræst, förum nánar útí villidýrin - einn ákvað að við værum ekki kúl og sagði að við værum eitthvað óekta eða hvað... svo var það kéllingin inná klói.. hvað var það sko... hún réðst á okkur og MÁLAÐI OKKUR.... GAAA.. og svo þessi sem ætlaði að stela af okkur taxanum.
Já Reykjavík er stórhættuleg!
en annars þá er ég að venjast þessum háa aldri. Þynnkan farin og held að ég hafi kannski ekkert verið þunn... bara 30 ára.
Skrifa ummæli