fimmtudagur, mars 12, 2009

hiti og kvef

Mældi Húnsa með 40,1 stiga hita í dag. Gaf honum 120mg af parasupp og lækkaði heilmikið hitinn við það og ögn hressari. Er annars bara búinn að vilja kúra og lúlla og pínu kannski drekka. En aðalega kúra. Keypti líka einhverja saltvatnslaust til að losa um slím og ógeð í nebbanum. Þá kannski sefur hann betur í nótt. Vonandi. Hann vaknaði á hálftíma fresti alla síðustu nótt og parasuppið búið....öss öss öss.
Ég ætla að kenna afmælinu hans Hrafnkels um. Fyrst að líklegt er að hann hafi smitast þar.
Heyriru það Sigga!!!! Við förum sko ekki aftur í afmæli til Hrafnkels á þessu ári takk fyrir og hana nú!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já það gæti verið... smitast og orðinn veikur eftir nokkra klukkutíma - engin smá flensa maaaaar!

annars ætla ég ekkert að bjóða þér í neitt barnaafmæli á þessu ári aftur neitt... bara kjéllingaafmæli.