mánudagur, apríl 20, 2009

Líter af svita á 50 mínútum....eða hérumbil


Fór í ræktina áðan með Guddu. Ekki svo sum merkilegt nema hvað við ákváðum að prófa opna tíma í spinning.

"Það eru fáar brennsluaðferðir sem brenna jafn mikið og spinning. Spinning er byggt upp á skorpuþjálfun sem er frábær leið til þess að byggja upp aukið þol á skömmum tíma og brenna fullt af kaloríum."


Held bara að ég hafi sjaldan svitnað jafn mikið en ég hafði ekki undan að þurrka svitadropana sem láku í stríðum straum niður í augu svo sveið undan, og hefðu rúðuþurrkurnar af bílnum komið að góðum notum.
Planið er að fara 2-3 í viku ...kemst ekki oftar vegna vinnu.

Svo pabbi....fjallahjól hvað...prófaðu þetta. Reyndar ekki eins skemmtilegt útsýni....oftast bara rassar að dilla sér á hjólinu fyrir framan...... kannski verður heppninn með manni einhvertíman og maður fær einhver flottan svoleiðis í útsýnið sitt....:)

3 ummæli:

Gudda sagði...

já þetta var geðveikt púl!!!!
Og já ég var svo heppin að ég gat ekkert horft upp nema að horfa BEINT Á RASS! Var reyndar karlmannsrass svo :)En vildi nú ekki virka út fyrir að vera einhver perri hehe.

En við verðum orðnar góðar í þessu eftir nokkur skipti og kílóin munu fjúka:)

Unknown sagði...

you sækós !
prufið líka boltajógað, það er helvíti strembið ... pílates eitthvað, sveigja, beygja, halda jafnvægi og nota þessa nasistabolta á ýmsa sársaukafulla vegu.

Nafnlaus sagði...

Það er fit pilates, hef prufað það og ég svitnaði ekkert....of létt!
Spinning er málið! it kills your thighs!

Gudda