þriðjudagur, ágúst 11, 2009

Fyrsta íþróttamót Húnboga

Ég er búin að skrá mig og Húnboga í skemmtiskokkið, Maraþonhlaupið 22 ágúst.......já....alveg heilir 3 kílómetrar. Man á sínum tíma þegar þetta voru 7 kílómetrar og við sistkynin tókum þátt ár eftir ár. Því miður er ekki tímataka á 3 kílómetrahlaupinu....en...við fáum verðlaunapéning. Helgi fær það skemmtilega hlutverk að vera myndatökumaður.
Verð náttúrulega með Húnboga í kerru en ætla leyfa honum að spreyta sig á síðustu 100 metrunum.
Hlakka til............
Mæli með því að fleyri skrái sig!

3 ummæli:

Unknown sagði...

hvernig getur skokk verið skemmtilegt? skemmtiskokk!!! ég sé bara geitunga, þrengsli, svínaflensu, þreytu og vesen og örugglega rigningu úr orðinu "skemmtiskokk"

no thanks, ætla að vera heima og elda gæs

Hlín sagði...

veistu...svona flugnaspaði sem gefur rafstuð kostar 800 kr í Fjarðarkaup, svo helduru þig bara aftast ....sem ætti ekki að vera erfitt fyrir þig og forðast þannig þreyngli, vesen og jafnvel svínaflensuna...
Og mér finnst rigningin góð...lalala

Unknown sagði...

og ef ég rek spaðann í saklausa vegfarendur ...? Sem ég geri pottþétt ef það kæmi reiður geitungur! Þá verð ég kærð!

nei, heima og elda gæs frekar