þriðjudagur, september 29, 2009

Frídagur

Leikskólinn hans Húnsa var lokaður í dag vegna skipulagsdags og ég tók mér frí í vinnuni.
Við fórum í húsdýra og fjölskyldugarðinn en því miður gleymdi ég myndavélinni (eins og venjulega).
Það var ENGINN þar nema við, enda var rigning og ekkert spes veður. Svo við fengum að skoða allt alveg í friði fyrir öðru fólki. Húnbogi vildi ekki klappa nautinu en fannst kalkúnanir voðalega skrítnir og áhugaverðir. Fengum líka leiktækin í fjölskyldugarðinum alveg út af fyrir okkur, og Húnbogi skemmti sér konunglega. Mæli samt ekkert með því að fara þarna um miðjan dag á haustin. Flest dýrinn voru úti og engin "dýrabörn" eftir á staðnum. Hittum þó geit í mútum og það var bara fyndið. Fengum okkur svo kleinu og kókómjólk á meðan mesta úrhellið var.

laugardagur, september 26, 2009

face in hole

Jább....stundum hefur maður ekkert að gera á laugardagskvöldum. Ekkert merkilegt í sjónvarpinu, Helgi að vinna, Húnsi farinn að sofa og gæludýrið mitt hún Gudda úti á flækingi.
Þá finnur maður sér skemmtilega síðu á netinu, eins og til dæmis faceinhole.com og tíminn flýgur.


Er Helgi í vinnuni þar sem hann segist vera?? Eða er hann á einhverju flandri........?


Spaðaásinn


Engillinn minn!


Búddatrúarmönnum finnst þetta kannski alveg jafn sæt og okkur finnst englar....


The force is strong with this one!


There's an old Ferengi saying. "Never ask when you can take."

sunnudagur, september 20, 2009

Sunnudagsmáltíð hjá Þuru langömmu

Fórum í spagettí og pönnsu hádegismat í dag.



Það var doldið erfitt að ná því upp á gaffalinn..........



En það tókst stundum.....



Og oftast var bara þægilegra að nota puttana............


Hann var ekki að gráta þó að sjáist í tár...það lekur bara svo oft úr augunum á honum.
Myndir frá Sigrúnu frænku.

miðvikudagur, september 16, 2009

Aftur veikur

Húnsi er aftur orðinn veikur. Er bara heima í dag. Ég var með hann fyrir hádegi, því Helgi var á næturvakt og fer svo að vinna eftir hádegi.
Hann er með smá hita og kvef. Voða lítill í sér.

Hann er núna búinn að koma heim 3svar sinnum með bitför af leikskólanum. Eitt skiptið á sitthvorum handleggnum, annaðskiptið aftur á handlegnum og svo í fyrradag á bakinu. Verður alveg rauður og marinn. Einhver bitvargur greynilega með honum á deild. Fóstrurnar vita af þessu.

mánudagur, september 07, 2009

Skilur heilan helling

Húnbogi er farinn að skilja annsi margt, þó að hann segi kannski ekki mikið.
Þegar ég spyr hvort hann vilji fá að borða þá hleypur hann inn í eldhús.
Og fara að busta tennur eða í bað....hleypur inn á bað.
Þegar ég segi...jæja....núna áttu að fara að sofa, þá hleypur hann að rúmminu sínu.
Svo spyr ég hvort hann nenni með í ruslið. Þá tekur hann og hendir í ruslið.
Ef ég segi honum að skila á sinn stað þá gengur hann frá eftir sig.
Og að sjálfsögðu skilur hann hættu, eða láta kjurt.
Er nokkuð viss um að hann skilji hvað komdu þýðir....en hann hefur ákveðið að það sé eitthvað sem þurfi ekki að gegna.

Fór með hann í leikskólann í morgunn og var búin að klæða hann í útiföt og skó og var eitthvað að vesenast með bakpokann hann. Þá hleypur hann og nær í skóna mína og ætlar að klæða mig í þá. Vildi bara drífa sig út.

Já.... og þegar ég segi að hann hlaupi alltaf hingað og þangað þá er það vegna þess að hann hleypur alltaf.

miðvikudagur, september 02, 2009

Lítill herramaður



......þessi litli herra maður á eftir að bræða nokkur hjörtu í framtíðinni....
mikill hjartaknúsari. Spariklæddur frá toppi til táar. Jólafötin kominn :o)
Jakkinn reyndar ennþá of stór en það er alltílagi. Húnsi er líka rosalega sætur án hans.....