Leikskólinn hans Húnsa var lokaður í dag vegna skipulagsdags og ég tók mér frí í vinnuni.
Við fórum í húsdýra og fjölskyldugarðinn en því miður gleymdi ég myndavélinni (eins og venjulega).
Það var ENGINN þar nema við, enda var rigning og ekkert spes veður. Svo við fengum að skoða allt alveg í friði fyrir öðru fólki. Húnbogi vildi ekki klappa nautinu en fannst kalkúnanir voðalega skrítnir og áhugaverðir. Fengum líka leiktækin í fjölskyldugarðinum alveg út af fyrir okkur, og Húnbogi skemmti sér konunglega. Mæli samt ekkert með því að fara þarna um miðjan dag á haustin. Flest dýrinn voru úti og engin "dýrabörn" eftir á staðnum. Hittum þó geit í mútum og það var bara fyndið. Fengum okkur svo kleinu og kókómjólk á meðan mesta úrhellið var.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli