mánudagur, október 05, 2009

skófetish

Húnbogi er kominn með skófetish á háu stigi. Mátar alla skó sem hann kemst í og labbar svo borubrattur um íbúðina í allt of stórum skóm. Þetta gerir það einnig að verkum að þegar maður þarf svo að hlaupa út þá getur tekið sinn tíma að finna skóna sína.... því þeir eru jú, oftar en ekki, á víð og dreif um íbúðina.
Orðaforðinn eykst líka hjá drengnum. En oft er erfitt að skilja. Hann kann að segja bíll, skór, húfa, meira, hæ, takk, sitja, bleyja og svo nottulega þetta sem allir þekkja " hvað er þetta"

Hann fekk ný kuldastígvél frá Sigrúnu frænku þegar hún kom heim frá USA og fór í þeim í leikskólann í morgunn. Hann var ekki sáttur, stappaði niður fótum og vildi fara í gömlu, of litlu, strigaskónum sínum. Jább, og svo þarf maður að taka fram kuldagallan sem hann passar enn í því það er bara orðið frekar svalt og meira segja kominn snjór.

Bangsi litli er ekki orðinn jafn ómissandi og hann var en er enn í uppáhaldi. Hann getur farið að sofa án hans en þá er hann með kisu í staðinn. En ekkert kemur í staðinn fyrir Bangsa þegar hann á bágt eða er lítill í sér. Leggur hann alltaf upp að eyranu, hvort sem hann er upp í rúmmi eða bara á röltinu inn í stofu.
Hann er farinn að ná í Bangsa og duddu í rúmið sitt á kvöldin þegar hann er orðinn sybbinn og kúrir með hann á gólfinu. Það er góð vísbending um að tími sé kominn að fara að hátta hann og koma upp í rúm.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já hehe man þegar við vorum að flýta okkur út og ég fann ekki skóna mína og eftir mikla leit voru þeir í körfunni hjá speglinum hehe Litla krúttið :) Sem er að verða svo stór :)

Gudda