miðvikudagur, september 16, 2009

Aftur veikur

Húnsi er aftur orðinn veikur. Er bara heima í dag. Ég var með hann fyrir hádegi, því Helgi var á næturvakt og fer svo að vinna eftir hádegi.
Hann er með smá hita og kvef. Voða lítill í sér.

Hann er núna búinn að koma heim 3svar sinnum með bitför af leikskólanum. Eitt skiptið á sitthvorum handleggnum, annaðskiptið aftur á handlegnum og svo í fyrradag á bakinu. Verður alveg rauður og marinn. Einhver bitvargur greynilega með honum á deild. Fóstrurnar vita af þessu.

2 ummæli:

ellapaunk sagði...

Æ greyið, alltaf veikur litli karlinn...

Nafnlaus sagði...

já hvað er þetta með barnið... Að vísu var Hrafnkell líka alltaf veikur á þessum aldri, var að verða biluð ! Hrafnkell kemur líka heim með marbletti og við fundum marblett á bakinu hans í gær!!!! einhver tengsl þarna á milli haaaaaaa?