fimmtudagur, janúar 07, 2010

jólin brennd

Þrettándinn var í gær og voru jólin kvödd og brennd í burtu með von um að hittast að ári liðnu.
Pabbi var á sjónum og mamma var á kvöldvakt svo við náðum bara í húsið og piparkökurestar og héldum til Reynis.


Piparkökurnar smökkuðust bara vel....þá þær væru orðnar sirka 3 vikna gamlar.


Bíddu bíddu, ætlið þið virkilega að brjóta húsið!?!



Fínt, þá geri ég það líka!


Húnbogi lét sér ekki nægja minna en húsvegg í eftirrétt


Svo kom Hrafnkell ásamt fylgifiskum og þá var farið út. Best að láta elsta barnið draga þau yngri.



Allir leyðast


Stjörnuljós tendruð


Horft á flottustu flugeldasýningu á landinu. Þrettándabrennan í Mosó.



Jább....hún var flott.

1 ummæli:

Unknown sagði...

það var gaman, nema að týna öllum stóru börnunum ... en annars, gaman. Hrafnkell er kominn með nýtt áhugamál sem kallast stjörnuljós, nú vill hann þannig ALLTAF.