fimmtudagur, janúar 07, 2010

Loksins nýjar myndir

Loksins fannst snúran til að tengja myndavélina í tölvu......en þegar hún fannst loksins týndist myndavélin. En nú er hún fundin svo allt er í góðum gír og nýjar myndir komnar inn.


Húnbogi að leira.



Hver man ekki eftir grátmyndunum sem hengu upp um alla veggi í gamladaga.....þessi minnir soldið á þær.


Jólin nálgast og Húnbogi í miklum ham við jólahreingerningarnar....



Og að því að hann er svo góður strákur þá fekk hann í skóinn frá Kertasníki....


Jólatréið komið upp og búið að skreyta allt og þrífa.


Og nú er ekkert eftir að gera en að bíða og öllum hlakkar til......eða næstum öllum.....


Húnbogi á morgun og hádegisverðar hlaðborði á Hótel Esju (man ekki hvað það heitir núna)
og lætur stórmannlega....enda stór maður.

Því miður voru engar myndir teknar um jól og áramót vegna þess að myndavélin var týnd :(

1 ummæli:

Unknown sagði...

passaðu bara að húnsi sjái ekki kertasníki myndina ... þá mun veröldin bresta. MAMMA HVERSVEGNA ERT ÞÚ AÐ SETJA Í SKÓINN MINN ???