Fyrsti foreldrafundurinn okkar var núna síðasta föstudag. Fundinum var skipt niður í flokka og rætt um hvern og einn.
Bara smá samantekt um hvað var talað og hvað Húnbogi er frábær strákur :)
Samskipti við fullorðna/börn
Góð samskipti við bæði fullorðna og börn en er byrjaður að svara fyrir sig þegar önnur börn eru með yfirgang.
Leikur úti/inni
Hefur leikið sér einn hingað til en fóstrurnar eru byrjaðar á sjá breytingu þar sem hann er aðeins byrjaður að leika með hinum.
Úti labbar hann yfirleitt bara um og á sér sinn uppáhaldsstað í skóginum þar sem hann heldur sig yfirleitt (einn). Fóstrurnar kvörtuðu yfir því að hann ætti það til að týnast þar því úlpan fellur svo vel í umhverfið...hehe
Áhugi og einbeyting
Sýnir mikinn áhuga á öllum hlutum og hlustar þegar lesið eða sungið er. Syngur þó ekki með í leikskólanum né heima. Fóstrunum fannst það pínu skrítið(?) (Fór og keypti Söngvaborg fyrir hann í dag á dvd sem eru krakkasöngvar og dansar)
Er mjög duglegur í svokölluðum könnunarleik þar sem börninn fá verðlaust dót til að skoða og leika með.(klósettrúllur, tvinnakefli og þessháttar drasl)
Tal og skilningur
Skilur flest sem fóstrurnar segja (bakvið, undir, ofaná og þessháttar) og þær heyra mun á málnotkun hans á hverjum degi. Er bara nokkuð framarlega á því sviði miðað við börninn á deildinni hans.
Tekur þátt í samræðum en segir ekki frá liðnum atburðum....
Grófhreyfingar/fínhreyfingar/sjálfshjálp
Er soldið stirður í grófhreyfingum ( en komumst að því að oft gæti það verið fötunum að kenna)
Fínhreyfingar mjög góðar og vandar sig yfirleitt, t.d þegar hann er að borða.
Verður mjög fúll þegar honum er ekki hjálpað úr útifötunum en er svo svaka stoltur þegar honum tekst það sjálfum
Matmálstímar og hvíld.
Borðar mjög vel og mikið (sérstaklega þegar er hafragrautur) og er byrjað að skamta ofaní hann..... fær annaðhvort 2 barnaskammta eða 1 fullorðinsskamt. Þær segja að við þurfum sko ekki að hafa neinar áhyggjur þá að hann borði ekki á kvöldinn!
Á erfitt með að sofna og tekur oft langan tíma. Truflast auðveldlega af hinum börnunum. Er yfirleitt kominn fram 60 -70 mínútum eftir að hvíldartími hófst. Fóstrurnar eru ekki hissa á að hann sofnar yfirleitt um leið á kvöldin.
Fyrirmæli og reglur.
Fer yfirleitt eftir reglum en nýjasta nýtt er samt að segja nei við fyrirmælum. Til dæmis ef hann er að klifra á milli stóla sem má ekki og honum sagt að koma niður þá horfir hann bara á þær og segir "nei" Þær kölluðu það bara að persóluleikinn væri farinn að sýna sig.
mánudagur, apríl 26, 2010
laugardagur, apríl 24, 2010
Ferðasagan
Lögðum af stað til Svíþjóðar þann 7 apríl og planið var að koma heim þann 15.
Lenntum á Arlanda flugvelli rétt fyrir utan Stokkhólm og tókum lestina til Jönköping.
Þar á hún Solla heima og tók hún á móti okkur á lestarstöðini og það fyrsta sem var gert var að bruna á næsta McDonaldsstað þar sem við urðum tíðir viðskiptavinir næstu vikuna ;9
Einnig var farið í nokkrar verslunarferðir í H & M, enda fyrir hvern 400 kr sem maður verslaði fekk maður 100 kr gjafabréf :) (Þá meina ég nottulega í sænskum krónum.) Kíktum líka á djammið föstudag og laugardag, og bara gaman að kynnast öðruvísi djammmeningu en hér á Íslandi. Skemmtistöðum lokað klukkan 2 og ekki blindfullt fólk á hverju götuhorni.
Prófuðum líka sænskt bíó,

Solla, ég og Gudda í göngutúr eitt kvöldið.

Í Svíþjóð leynast nokkrar flottar byggingar og þetta er ein þerra.... Kirkja í Jönköping.

og flottar skreytingar utan á sumum byggingum....
Þegar kom að heimferðinni lögðum við af stað frá Jönköping klukkan 3 um nóttu, og vorum komnar á Arlanda klukkan 7. En flugið átti ekki að fara fyrr en klukkan 14. Það var ekki fyrr en um 11 leytið að okkur var sagt að það yrði líklega ekki flogið frá Íslandi vegna öskufalls. En þó var ekki gefið öruggt svar og alltaf talað um nýjar upplýsingar myndu berast seinna. Þegar klukkan var orðinn 22 var orðið nokkuð ljóst að hvorki yrði flogið um kvöldið né næsta dag. Mikið var af fréttamönnum á flugvellinum og voru tekin 2 viðtöl við okkur og myndir sem áttu að byrtast í sænskum fjölmiðlum.
Var þá tekið á það ráð að hringja í Ljót, bróður mömmu, sem á heima 40 km fyrir utan Stokkhólm í littlum bæ sem heitir Suður Telje. En þar sem hann var á bakvakt og gat ekki farið langt þá þurftum við að taka lest. Heppninn var með okkur og á aðallestarstöðinni í Stokkhólmi var tekið enn eitt viðtalið og okkur fylgt í rétta lest. Annars hefðum við líklega fundið það fyrr en mörgum tímum seinna.
Ljótur kom svo og sótti okkur á lestarstöðina í Suður Telje. Þá var klukkan að ganga miðnætti.
Vorum fegnar að komast upp í rúm eftir um það bil 35 klst vöku.

Rautt = Cansel
Seinna um daginn varð allt rautt.
Ljótur og Tóta gerðu allt fyrir okkur og vildu ekki að okkur leiddist. Fóru með okkur á Kökuhlaðborð í gamla sumarbústað kóngsing á Laugardeginum og á Sunnudeginum fórum við í Túristaferð um Stokkhólm. Og að sjálfsögðu var farið í eina verslunarferð enn í H & M.

Sumarbústaður kóngsin.

Girnilegt kökuhlaðborð og of margar sortir til að prófa í einni ferð........

Fallstykkinn í bakgarðinum.

Og hesthús sem geymir kappreiðahesta.

2 voru úti í gerði og svo vara bara gægst á gluggann......

Dádýr í garðinum séð út um eldhúsgluggan. Ljótur og Tóta höfðu gefið því að borða um veturinn og er búið að venja komur sínar þangað.

Stokkhólmarferðinn og Ljótur og Tóta.

Sjálfsögðu var konunghöllin skoðuð

Verðirnir.

Elsti hluti Stokkhólmar. Gamle Stad.

Og tívolíð sem er því miður lokað fram í maí.
Svo kom nú loksins að því að við kæmumst heim, eftir að hafa fylgst með fréttum og flugsamgöngum í 4 daga. Búnar að bíða í von og óvon upp á að það yrði nú kannski flogið á morgunn. Allsekki slæmt dvöl en erfitt að vita ekki hvenar maður kæmist heim og eyðilagði svolítið fyrir manni ferðina.

Flogið var norður fyrir gostöðina, þannig að flogið var yfir Vatnajökul

og Eyjafjallajökull. Gosmökkurinn virtist nú lítilfjörlegur en við flugum 50 km norður fyrir hann.
Svo sóttu Helgi og Húnbogi okkur og það fyrsta sem Húnsi sagði var " Mamma, kondu inn í bíl!"

laugardagur, apríl 17, 2010
Aevintyrinn gerast
Jaeja...nu er madur bara fastur her i Sverige. Og enginn veit hvenar madur kemst heim. Erum tho her i godu yfirlaeti hja Ljoti og Totu. Erum bunar ad heimsaekja Munda og Izabellu, og i dag forum vid i sannkallad kokuhladbord i gamla sumarbustad kongsins her i Sverige. Erum bunar ad boka ferd i Norraenu Smyril line og fer skipid naesta Laugardag. Spurning hvort madur verdi samt ekki kominn heim adur en tharf ad gripa i plan B. Allavega samkvaemt vedurspa verdur sama vindatt naestu 2 daga og hugsanlega 4 til 5 daga.
Sakna Hunsa mins og eftir tvi sem ferdinn lengist er komid meira og meira dot og fot sem eg kaupi handa honum.
Thangad til naest
Hej då

mánudagur, apríl 12, 2010
Kveðja frá Swerige....
Jæja...nú styttist í að maður komi heim og ekki frá því að mann sé bara farið að hlakka til....
Það fyrsta sem ég ætla að gera er að knúsa Húnsapúns.
Er búin að fara í H&M og keypti svo mikið af fötum á Húnboga að ég fékk gjafabréf upp á 5000 kr. Var nú ekki lengi að eyða þeim heldur...hehe :)
En því miður byrjaði ferðinn ekki allt of vel því að á síðustu stundu var okkur sagt að við þyrftum að taka lestina frá flugvellinum til jönköping þar sem við erum búin að vera. Upplýsingarnar voru rangar og í stað þess að borga 100-200 kr sænskar (2000-4000 sirka) í lest þá kostaði það okkur 1050 kr sænskar (18.000 kr ísl) og þar með næstum helmingur eyðslufésins farinn í súginn.....
o jæja....Helgi tekur bara nokkrar aukavaktir ;)
Á eftir að fara eina verslunarferð í viðbót og finna eitthvað handa Helga, nú og ef ég finn ekkert handa honum þá á ég ekki neinum vandræðum með það að finna eitthvað handa mér....tíhí.
Annars bara búið að vera mjög gott veður, búið að fara í smá göngutúra og kíkt á smá djamm um helgina. Sænskt djamm er ekkert lýkt því íslenska......
Myndir og fleyra skemmtilegt þegar ég kem heim.
hej do

föstudagur, apríl 02, 2010
mánaðarleg spilakvöld, bogamót og endur
Það er orðið þannig að ef við keyrum fram hjá vatni eða sjó þá heyrist aftur í " bra bra brauð". Þannig að síðustu helgi fórum við og gáfum bra bra meira brauð. Fórum að tjörninni hérna í Hafnarfyrði.

Komum að tjörninni....og þarna á stéttinni var ein fótbrotin gæs sem hinar hröktu alltaf í burtu :(

Húnbogi náði strax athygli stórs og fallegs svans sem fannst brauð bara nokkuð gott.....

held að hann hafi fengið meiri hlutan úr pokanum.....enda kvakaði hann svo blíðlega og beið rólegur á meðan Húnsi seildist í pokann. Svanurinn hefði tekið brauðið úr höndinni hans Húnboga ef ég hefði leyft það en hann vildi rétta svaninum brauðið og hann hefði tekið það (líklega þó með því að bíta í litla putta í leiðinni) en ég náði að færa Húnboga frá á síðustu stundu.....

Brauðið búið og Húnsi vinkar bless.
Þar síðustu helgi var svo haldið Íslandsmeistaramót í Bogfimi, og í annað skiptið var flokkur fyrir Langboga líka. En það vill svo til að aðeins tóku þátt víkingar í þeim flokki. Einnig var keppt í Recurve flokki og compound flokki, en það eru nútímalegri bogar með miði og fleiru apparötum, búnir til úr áli og títani.

Flottur hópur.....

Samtals var skotið 120 örvum og stiginn reiknuð. Í hverrju holli fengum við 2 mínútur til að skjóta 3 örvum.

Eftir hvert holl var svo athugað hvort maður hefði hitt eitthvað og stig skráð niður.

Ég fekk annað sætið með 399 stig.

Húnsi var að sjálfsögðu á staðnum til að hvetja mömmu sína :)
Húnbogi fær að taka virkan þátt í heimilisstörfunum, hann er duglegur að fara með í ruslið og taka dótið til en stundum tekur hann upp ryksuguna líka...

Ryksuga aðeins hér......

og þarna líka.........

Heimilisstörfin eru ekki alltaf skemmtileg......... og þá er gott að hafa duddu og bangsa til að létta manni stundirnar.
Ég og nokkrir vinir mínir höfum tekið upp á því að halda mánaðarleg spilakvöld. Eru nú 2 kvöld að baki og búið að plana það 3. Vaninn er að grilla og fá sér kannski smá í glas ef menn eru í stuði (og ekki vantar nú stuðið) og spilað langt fram eftir kvöldi og fram á nótt. Fórum í actionari núna síðast. Næst er planið að fara í Karoki hjá honum Dóra.

Ísarr að leika.....veit ekki alveg....myndi giska á " pissa á sig"

Ég að leika "pota". Einfalt og mjög augljóst!!

Enn að "pota". Er barasta mjög hissa á því að enginn náði að giska á þetta..........!

Gudda í ham. "Að flýja paparzzi og mistakast"
Jæja....mjög stutt í svíþjóðarferðina, aðeins 5 dagar og ekki skemmir að biðin verður ekki allt of löng því páskarnir eru þarna á milli.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)