fimmtudagur, maí 27, 2010

sól, sumar og bjartir dagar

Langt síðan ég hef sagt frá hér síðast.
Er búin að vera pínu leið og eitt og annað búið að ganga á. Fannst örlögin mjög ósanngjörn á tímabili. En ég er öll að hressast og bara bjartir dagar framundan. Maður gefst ekkert upp og maður dembir sér bara í áframhaldandi meðferðir. Þetta er bara spurning um tíma og hve lengi maður þarf að bíða
Nú er víkingavertíðin að byrjuð og fórum við síðustu helgi á Reykholt í Biskupstungum á upphitunarhátíð og var alveg frábært veður og ennþá skemmtilegra fólk.
Írena og Elín komu til landsins en eru að fara heim í dag og voru fagnaðarfundir hjá Húnboga og Írenu. Írena hélt líka upp á 3 ára afmælið sitt. Hún er að fara að eignast lítið sistkyn í nóvember en Elín og Timme eru ólétt.
Maður er nú alltaf svo vitlaus að gleyma alltaf myndavélinni :( ..... en mamma tók nú fullt af myndum.
Nú hlakkar mig mest til að komast í sumarfrí og fara svo til Bandaríkjana í brúðkaup hjá Jóhanni og April.
Húnbogi er byrjaður að syngja og verður alltaf ófeimnari við það að syngja fyrir mig. Fyrst hvíslaði hann bara en er nú farinn að leggja kraft í þetta. Einu löginn sem ég hef heyrt hann syngja eru "Gulur, rauður, grænn og blár" og "Hún á afmæli í dag"
Fer að bæta við nokkrum myndum á næstu dögum :)

1 ummæli:

Unknown sagði...

Hann syngur með júróvísjón næsta ár. Hrafnkell kann öll skemmtilegu lögin og syngur HÁTT (of hátt) með þeim.

ÞAð verður fjör á júróvísjón með Hrafnkeli syngjandi oní öll lögin - hann er örugglega verri en þú.

mék