sunnudagur, júní 27, 2010

Nýja handverkið mitt

Er byrjuð á nýrri krosssaumsmynd. Myndin að þessu sinni er af honum Húnboga, tekinn þegar hann var 1 árs og 8 mánaða. Reynir setti myndina í photoshop og vann hana þannig að það urðu 60 litir og bjó til litakort.
Ég og mamma fórum svo í Erlu á föstudaginn og eyddum 2 tímum í að velja liti eftir litaspjaldi.
Þetta eru sirka 60 litir. Við keyptum um 40 liti og 20 litir verða blandaðir.
Svo hef ég bara sauma og sauma og nenni helst ekki að borða eða sofa. Enda búin að fara seint að sofa þessa helgi.

Hér eru nokkrar myndir af því sem komið er. Ég ætla ekki að setja upprunalegu myndina hér, heldur ætla ég bara að setja inn myndir af því sem ég er búin að sauma þar til hún er búin. Hvort sem það verður 6 mánuðir eða 2 ár. Þið verðið bara að fylgjast með ef þið viljið sjá. ;)


Hreinn hvítur 16" jafi og litirnir sem við völdum


Dagur 1 að lokum kominn


Dagur 2 að lokum kominn. Þið ættuð að geta séð eitthvað út úr þessu.....


Dagur 3 hálfnaður..... og nokkrir farnir að biðja um að sjá myndir af þessu. Gjörið þið svo vel.


Svona aukafréttir. Bæði Húnbogi og Helgi eru með streptokokka sýkingu og eru komnir á sýklalyf. Ég á að fara á þriðjudaginn og láta taka sýni ef ég verð ekki orðin veik, því ég gæti verið smitberi þá ég fái ekki einkennin.
Tók líka eftir útbrotum eða bólum á Húnboga og spurning hvort hann sé nokkuð að fá hlaupabólu. En ég veit svosum ekkert um það því ég veit ekki hvernig hlaupabóla á byrjunarstigi lítur út. Var líka farinn að halda að hann hefði skarlattsótt út af rauðri tunguni, en miðað við myndir á netinu þá eru þessi útbrot ekkert lík þeim útbrotum sem fylgir henni. Plús það að læknirinn sagði ekkert um skarlatsót, en hann vissi heldur ekki af þessum útbrotum. Þau voru bara að koma. Kannski er þetta bara ekki neitt.......

Húnbogi hinn Bjarti

Húnbogi er orðinn nokkuð ríkur af víkingafötum, svona miðað við aldur, og getur klætt sig upp eftir veðri og jafnvel verið soldið sparilegur ef maður vill.
Hér er 3 útgáfur af Húnboga hinum Bjarta.


Hörkyrtill og kanínuvesti..


Kominn í ullarkyrtilinn og hettu, aðeins kólnað.
Heillaði dömurnar og montaði sig af víkingaskónum.
Hjá þessari fékk hann oft ódýran svala.


Skikkjan prófuð og hann var bara frekar sáttur.

sunnudagur, júní 20, 2010

víkingahátíðinn að baki

Margt búið að ganga hér á seinustu vikur. Víkingahátíðinn byrjaði á fullu og stóð í 10 daga. Var mjög gaman og við kynntumst nýju fólki sem hefur ekki komið hér áður á hátíð. Húnbogi skemmti sér líka vel og var vinsæll meðal túrista og fréttaljósmyndara. Ég gerði þó ekki mikið annað en að ganga um á eftir Húnsa og jú, einu sinni á dag tók ég þátt í bogakeppninni. Hlakka til þegar hann getur hlaupið um einn án þess að verða skelkaður þegar hann áttar sig á því að hvorki mamma né pabbi eru í sjónmáli. Kannski eftir 2 ár.......

Svo átti nottulega Helgi afmæli en eins og venjulega var enginn veisla því hann vill frekar hanga á hátíð en að baka köku!

Nú er bara vinna í fyrramálið en af því að það eru svo margir skólakrakkar í vinnuni núna þá losna ég klukkan 1 þangað til að ég fer í sumarfrí eftir 2 vikur.
Á morgunn fer svo fjölskyldan upp í Reyniborg, en það er sumarbústaðurinn sem afi og amma í Hábæ byggðu, til minnast þess að ár er síðan afi fór.

En eins og venjulega koma myndir bara seinna af hátíðinni.

laugardagur, júní 05, 2010

Gulli Gullfiskur

Opið hús frá 10 til 12 í leikskólanum í gær. Skruppum þangað í rosalegu góðu veðri og sáum hvað krakkarnir eru búnir að vera að bralla í vetur.


Húnbogi sýndi okkur hvað honum finnst skemmtilegt að gera.....


.....margt skemmtilegt sem hann gerir greinilega.

Fórum svo eftir leikskólaferðina í dýraríkið og eyddum smá péning........


Húnbogi fekk að velja alveg sljálfur, þeir eru aðeins að kynnast.


Hella vatni í búrið hann Gulla


Gulli kominn heim til sín og Húnbogi gefur honum að borða á hverjum degi.


Kátir félagar.......


Leika sér saman.

Kátur strákur...

Húnbogi er heldur betur kátur núna. Eftir smá umhugsun og pælingar var farið í Dýraríkið í dag og keyptur 1 stykki gullfiskur handa dýravininum. Einnig fekk hann glerkúlu til að hafa hann í og smá skraut. Hann fekk að hjálpa til við að setja búrið upp og leyndi sér ekki spenningurinn. Það er hans verk að gefa honum að borða á hverjum degi en við foreldrarnir sjáum um að þrífa það.
Ég er líka bara nokkuð kát yfir þessum nýja fjölskyldumeðlimi því það er ekki til fallegra heimilsskraut en vel hirt fiskabúr.

Í morgunn var líka farið í opið hús í leikskólanum þar sem verk vetrarins voru skoðuð, hoppukastalar og vöfflur í boði.

Eins og venjulega þá koma myndir seinna. :Þ