miðvikudagur, janúar 09, 2013

5 ára afmæli og sitthvað fleyra......

 Í dag (eða tæknilega séð í gær) héldum við upp á 5 ára afmælið hans Húnboga. Þó svo að hann eigi ekki afmæli fyrr en 17 jan þá var þetta tímin sem flestir gátu komist í veisluna hans. Þetta flakk á fólki til útlanda er rosalegt............  Við héldum líka þrettándan hátíðlegan síðasta sunnudag með tilheyrandi sprengjum og kökuáti.
Húnbogi tók sáttur á móti síðbúinni jólagjöf frá Gulla. Ég fékk áfall þar til mér var bent á að þetta er box með 15 venjulegum sleikjóum en ekki heilt kíló af sykri.


Fórum á þrettánda í Mosó. Þar voru haldin smá litlu jól því Írena og Alfreð komu til landsins og opnuðu sína pakka. Piparkökuhúsin var slátrað og svo allt sprengt í háaloft.

 Hulda Rún fékk að vera upp á borði og var mjög sátt með mandarínuna sína..... og fyrst að Hulda fékk að vera upp á borði vildu hinir líka......

Sprengja sem átti að fara upp á áramótunum en var geymd þar sem Húnbogi var ekki í stuði.

 Þessi tvö brenndu sinn skerf af jólunum með ótal stjörnuljósum og bengalblysum.


 Afmælisveislan. Eins og venjulega gerði Elísabet aðalkökuna en þemað í þetta sinn voru strumparnir. Og þó að Elísabet væri ekki einu sinni á landinu (hún var því miður sú eina sem komst ekki í þetta sinn) gerði hún þessa fínu tertu af smíðastrumpi eftir ósk Húnboga og sá var sko sáttur.



Veisluborðið og kræsingarnar...namminamm

Hér er svo vídjó af Húnboga þar sem hann afhjúpar gjöfina sína.
Mjög svo sáttur með þetta allt saman.

Engin ummæli: