fimmtudagur, janúar 03, 2013

Jól og áramót

 Nú eru jól og áramót að baki og hversdagsleikin nálgast óðum. Þrettándin er þó eftir og svo afmælið hans Húnboga.
Við eyddum aðfangadag hjá mömmu og pabba og þar voru líka Hlynur, Reynir, Vigdís og Heiðrún. Fengum skemmtilegar.... tja...eða meira grömsuðum eftir skemmtilegum fréttum, því jú, pakkarnir heilla eins og svo oft áður og á meðan beðið var eftir matnum grömsuðum ég og Hlynur í pökkunum, hristum og skoðuðum, og á einu korti, sem reyndar var ætlað Elínu, sem var þó ekki með okkur heldur í Danmörku með fjölskyldu Timme, stóð að pakkin væri frá Reyni, Vigdísi og litla barninu. Þetta þótti okkur Hlyni grunsamlegt og kröfðumst svara. Sem við fengum. Reynir og Vigdís eiga von á barni 1 Júlí. Ég óska þeim að allt gangi vel og hlakka til að hitta framtíðar leikfélaga Huldu.
Fyrir utan þetta þá var maturinn fínn, en pakkaflóðið kannski heldur mikið og tók 3 tíma að opna pakkana. Höfum tekið þá ákvörðun að ef jól eru haldin annarstaðar en heima, að taka bara þá pakka sem tilheyra þeirri fjölskyldu sem við verðum hjá. Hulda var róleg allt kvöldið en Húnbogi var heldur fyrirferðamikill og lá hátt rómur.  Fórum strax heim eftir pakkaupptektina enda sumir orðnir bæði þreyttir og pirraðir og engin tími gafst til að skoða gjafirnar eða taka spil.....

Húnbogi Bjartur og Hulda Rún þegar klukkurnar slógu inn jólin.

Hulda var róleg og lét lítið hafa fyrir sér.

Jóladag fórum við svo á Álftanes en annan í jólum var bara eytt heima og fannst mér það bara mjög gott að þurfa ekki að vesenast neitt og fara út með börnin. Skrapp aðeins í ræktina um hádegið og Tengdó beið með veislumat heima þegar ég kom....Horfðum svo bara á sjónvarp og átum nammi. Húnbogi varð nokkuð veikur 2 í jólum, fékk háan hita og svaf mestallan daginn. 3 í jólum líka. Frekar slappur dagana á eftir en nokkurnvegin hitalaus. Fór því ekkert í leikskólan þá vikuna.

 Áramótin héldum við á Álftanesi. Húnbogi fékk leyfi til að vaka eins lengi og hann vildi og var mjög ánægður með það.  Fórum á brennu og skutum nokkrum sprengjum. Þegar áramótaskaupið byrjaði var Húnboga plantað inn í Elísabetar herbergi með dvd svo aðrir gætu horft á skaupið í fryði. Já, ljótt að segja það, en Húnbogi á það til að stela allri athygli...... Hann var þó sáttur en steinsofnaði yfir dvdinu þrátt fyrir stór orð um að ætla að vaka alla nóttina. Rétt fyrir 12 er ýtt við honum en hann vill ekk út, eftir smá umtöl sættist hann á að fara út en var bara alls ekki í stuði, Svo við geymdum stóru sprengjurnar til þrettándans og ég fór með hann aftur inn rétt fyrir tólf. Þegar ég spurði svo hvort við ættum ekki bara að fara heim að sofa var svarið "ég vil alveg fara heim og vaka". vorum komin heim rétt fyrir 1 og Húnbogi fer upp í rúm með dvd. Er sofnaður 10 mínútum seinna. Næsta morgun var hann ansi svekktur því hann vildi jú vaka alla nóttina og ætlaði bara að hvíla lappirnar..........
Hulda var eins og um jólin með lítið vesen. Sjáum til hvernig næstu ár verða....
Nú er hún samt komið með sitt fyrsta kvef með hori og hósta, en þó hitalaus hingað til.

Húnbogi klæddur í sitt litskrúðugusta úr fataskápnum með hanakamb sem gerður var með eggjahvítum. Honum fannst hann mjög flottur og sagði að hann liti út eins og dreki.
 drekinn frá hlið.

Og þannig endaði árið 2012.

Gleðilegt nýtt ár frá Háunum 4.

Engin ummæli: