fimmtudagur, júní 27, 2013

Fengum loks smá sól

 Loksins kom smá veðurblíða, þó sólin hafi stoppað stutt.
Fórum einn daginn í Mosó og eyddum deginum þar......

 Hulda fékk að leika sér smá berrössuð enda ekki kalt og sólin brosti sínu blíðasta.

 Lautarferð hjá þessum þrem....

 Hulda Rún í sumarkjólnum.... sem var keyptur einmitt fyrir svona tækifæri.

 Hún lék sér og smakkaði aðeins á sandinum.

 Húnbogi og Írena í bílaleik.....

 Hulda Rún hugsi.......hvað ætli hún sé að hugsa?


 Írena fékk svo að gista 2 nætur hjá Húnboga frænda sínum en það var líklega hápunkturinn á ferð hennar hingað til Íslands. Mikið búið að hlakka til að gista saman... Það var gert mikið plan yfir daginn...sem við vorum svo heppin með því það var sól og blíða.
Byrjuðum daginn klukkan 8:00. Fórum í sund í Lágafellslaug því þar eru 3 vatnrennibrautir sem kalla, en þær voru því miður ekki í gangi venga lagfæringa. Það skipti þó litlu og við vorum í sundi í tæppa 4 klts. Fengum okkur pulsu og safa þegar upp úr var komið og keyptum svo ís til að borða í garðinum hjá ömmu og afa í Mosó. Þar var stutt stopp og planið að fara í krakkahöllina á korputorgi. Sem betur fer var sumarlokun og við ákváðum í snatri að fara í húsdýra og fjölskyldugarðinn.. ... ég hafði ekki mikin áhuga á að hanga inni í þessu veðri. Keyptum 10 miða til að fara í tívolítækin þar.

 Fóru í hringekjuna og lestina......

 Gerðu um sig sápukúlu hjúp....

 Skoðuðum að sjálfsögðu öll dýrin.....

 hoppuðu og skoppuðu....

 Prófuðu allt sem hægt var að prófa....

Skutu boltum.....

urðu sjóveik.....

prófuðu þetta líka....

og þessa rafmagnsbíla....

Um 4 leytið skunduðum við svo á Metró og fengum okkur hamborgara og franskar áður en við héldum í Laugarásbíó þar sem við fórum í 5 bíó á myndina Epic. Teiknimynd um baráttu skógarálfa við rottnun.... Mjög skemmtileg mynd (allavega hló ég ansi oft)

Fórum svo bara heim þar sem þau fengu að horfa á vídjó upp í rúmmi þar til þau sofnuðu.
Næsta morgun fórum við svo aftur í Lágafellslaug og vorum rúma 2 tíma. Í þetta sinn voru rennibrautirnar vel nýttar.  Um 12 leytið fór Írena svo með ömmu sinni og afa til Siglufjarðar en ég og Húnbogi héldum heim á leið.......

Engin ummæli: