þriðjudagur, júlí 09, 2013

Nauthólsvík

 Hulda Rún réðst á stéttina í Mosó.....  Hulda krambúleruð en þið ættuð bara að sjá stéttina!!!
 Maður verður náttúrulega að eiga mynd af fyrsta krambúlerinu.....

Veðurspáin spáði glampandi sól fyrir hádegi í dag en eftir hádegi átti að vera skýjað.... Þess vegna stillti ég vekjaraklukkuna á 8. Leit út um gluggan þegar hún hringdi og þoka birgði sýn í næstu hús.... Fúllt, hugsaði ég, enn einu sinni eyðileggur hafþokan sólardaginn. Fór bara aftur upp í rúm.... en 1 og hálfum tíma seinna skein sólin skært inn um gluggan og við brunuðum í Nauthólsvík. Ekki leit það vel út á leiðinni en frá Hafnarfirði og að víkinni keyrðum við í gegnum 3 þokubakka. Og yfir víkinni sjálfri var líka þokubakki. En það var hlýtt og lítill vindur og ég var viss um að sólin myndi sigra að lokum, enda sungum við hástöfum " sól, sól, skýn á mig" á leiðinni í bílnum. Og 10 mín eftir komu okkar í víkina skein sólin skært í gegnum þokuna.

 Fyrst fórum við í heitapottinn þar sem Húnbogi var ekkert allt of ánægður með skvetturnar frá Huldu....

 Færðum okkur svo um set og komum okkur vel fyrir á sandinum, sólarvörnin var óspart notuð.....

Hulda var mjög sátt í sandinum með nýja sólhattin sinn og maulaði á kexi, banana og sandi eftir langan göngutúr í fjörunni.....

Húnbogi fann sér holu og leitaði að skeljum.

Þarna er klukkan að verða 11 og þokan að mestu gufuð upp. Og þessi tvö skemmtu sér mjög vel á ströndinni, Húnboga langar allavega að fara aftur. Sólin lét sig svo hverfa fljótlega upp úr klukkan eitt.

Engin ummæli: