mánudagur, júlí 15, 2013

Göngugreining

Ég og Húnbogi fórum í göngugreiningu í dag. Ég, vegna þess að ég finn til í hnéinu og Húnbogi vegna þess að hann hefur kvartað undan verkjum í sköflungunum á kvöldin.
Í ljós kom semsagt að við erum bæði meingölluð.... eða svoleiðis.....

Húnbogi er eins og við vissum með lin liðbönd og er enn með smá flatfót. En út af þessum liðböndum þá hallast fóturinn óeðlilega mikið til hliðar innávið. Og þegar að er gáð gat ég sjálf séð hvað hásinarnar á honum beygjast. Hann fær því sérsmíðuð innlegg og þarf þar að auki að vera í vönduðum og stífum skóm, með sólum sem ekki er auðvelt að snúa upp á.

Ég er með mislangar lappir sem munar 0,5 cm og fóturinn rúllar inn á við, og er innskeifari en hinn, þegar ég geng sem getur verið orsökin á þessu hnévandamáli. En þar sem ég finn hvorki til í mjöðmum né baki, þarf ég ekki að spá mikið í þessarri mislengd, en þarf að vera í hlaupaskóm með innanfótarstyrkingu. Ef ég vil get ég líka fengið innlegg, sem væri kannski ekki svo vitlaust, því þá gæti ég notað þau í fleiri skóm. Eitthvað var líka talað um að það dreyfðist of mikið álag á ilbogana en þar sem ég er ekki með verki í fótunum þá skiptir það kannski ekki svo miklu. (man ekki alveg hvað allt þetta heitir eða hvað var sagt en þetta er svona eins og ég man það).... hlakka til að kaupa mér nýja hlaupaskó, sem hvort sem er var komin tími á, og sjá hvort hnéið hagi sér vel.

Engin ummæli: