mánudagur, júlí 22, 2013

1 árs afmæli og Gásar.

 Loksins rann upp sá stóri dagur og Hulda Rún fagnaði sínu fyrsta afmæli. Hún bauð í kökur og kaffi og skemmti sér vel með gestum sínum......

 Hulda Rún 1 árs.

 Hulda Rún.... enn bara 1 árs.....

 1 árs stelpur geta líka verið prakkarar.

 Húnbogi fagnaði með Huldu en hann átti einmitt 5 og hálfs árs afmæli daginn áður.

 Sistkynin svo sæt og fín.....

 Afmælisborðið.... og ekki klikkar hún Elísabet í afmæliskökunum....

 Hulda fékk að maula á pönnuköku meðan sundið var fyrir hana.

 Fullt af allskonar gestum....


Eftir afmælið var sjálfu afmælisbarninu bara komið fyrir í pössun svo við eldri gætum farið á miðaldardaga á Gásum rétt fyrir utan Akureyri.... Við fengum æðislegt veður allan tíman og margt var gert sér til gamans.

Húnbogi æfði sig á húnbogan sinn sem hann fékk loks í skírnargjöf frá okkur.


 Nokkuð flott hjá honum.... en þarf að æfa sig soldið meira.

 Ekki mikið mál að fara í feluleik....

 Bryggjan

 2 félagar. Hrafnkell Þór og Húnbogi Bjartur.

 Hrafnkell lætur ekki frá sér vopnið!

 Vaðið í sjónum...
 Og bátsferð á alvöru víkingabát.

 Flottur víkingur.

 Dundað í sandinum....

 Á banabeði....

 Húnbogi tók þátt í smá sýningu og grýtti þjóf með eggi, Og hitti beint í hausinn á honum.

 Leikið á ströndinni.

Komum heim á sunnudagskvöldi klukkan 11 og beint upp í rúm.
Húnbogi fékk svo loks um morguninn að kubba legoið sem Hulda Rún gaf honum fyrir að vera góður stóribróðir í heilt ár. Já... og eins og þið sjáið var Húnbogi losaður við lubban sinn.....



Engin ummæli: