laugardagur, ágúst 03, 2013

Bústaðarferð.

 Írena og Alfreð gistu hérna eina nótt og það gekk bara nokkuð vel. Stóru börnunum hafði verið lofaður sleikjó en litlu börnin tóku ekki annað í mál en að fá líka!

 Huldu fannst sleikjóinn æði, fékk samt ekki að klára hann og var komin með sykurhúðað hár sem stóð út í allar áttir eftir smástund.


 Ég og Húnbogi skelltum okkur í bústað til Siggu og Hrafkels, þar sem foreldrar Siggu eiga bústað nálægt Geysi. Fyrsta daginn (gleymdi að sjálfsögðu að hafa myndavélina) var farið að skoða Geysissvæðið og töfravatnið (Strokk). Húnbogi fannst hann æði og sá hann gjósa þrisvar sinnum. Seinna um daginn fórum við að læk sem rennur um landið og þar er smá hylur. Þangað skelltu Húnbogi og Hrafnkell sér og þó að vatnið væri frekar kallt fóru strákarnir alveg í axladýpt.... mér til mikillar undrunar, hélt að Húnbogi væri of mikil skræfa, en svo var greynilega ekki. Þeir hlýjuðu sér svo í heitapottinum eftir svaðilförina.


 Um kvöldið skelltu þeir sér á hestbak og þá er eins gott að hafa góðan vin til að hjálpa til við að setja öryggisbúnaðin á.....

 Húnbogi berbakt á honum Atlasi og Hrafnkell teymir.

 Fundum þessa stórmerkilegu lirfu..... ótrúlega litrík og sæt, en eftir að hafa vafrað á netinu til að sjá hvað verður úr henni er það bara brún mölfluga..... 

Fórum í gönguferð í Haukadalsskóg þar sem við lifðum af ævintýri.... þetta var nefnilega álagaskógur, vindurinn kunni að tala og lækirnir voru eitraðir. Svo voru líka gildrur út um allt sem breyttu fólki í tré!

 Fórum þennan veg sem er gerður fyrir fatlaða....

 Smá tjörn það sem steinum var kastað af lífi og sál.

Kveðjustund.

Gistum þarna 2 nætur. Fórum svo heim og ég fór með Huldu í 1árs skoðun. Hún er nú 78,1 cm og 9,6 kg. Heldur sinni hæðarkúrfu, en dettur örlítið niður í þyngd, enda ekki búin að borða vel upp á síðkastið.

Engin ummæli: