mánudagur, ágúst 19, 2013

Dagmamma og skóli

Jæja... Nú er sumarfríið búið, Húnbogi byrjaði á leikskólanum 8 ágúst og Helgi er líka byrjaður að vinna. Ég og Hulda aftur á móti höngum saman í fríi alla daga. Reyndar er Hulda að byrja í aðlögun á morgunn hjá dagmömmunni sinni á morgunn, en það verður bara klukkutími, og ég held meira segja að ég fari ekki einu sinni neitt á meðan......
Ég byrja svo í skólanum næsta mánudag, smá kvíði í mér, en það lagast örugglega um leið og ég er byrjuð. Ekki hjálpar að kennarinn við fagið "Talað mál og ritað"  segir að þetta sé eina fag sé á við 7 og hálfan vinnudag í viku! Allavega 2 ritgerðarskil í viku og jafnvel munnleg verkefni líka..... úff. Þetta er mín versta martröð þar sem verkefnin ganga út það að flytja ritgerðir vel, með augnsambandi og góðri líkambeytingu og skrifaðar ritgerðir þurfa að vera rétt stafsettar. Féll ALLTAF á stafsetningu í grunn og menntaskóla, en ég vona bara að feymnin hafi elst eitthvað af mér og ég stami ekki bara og skjálfi þegar ég þarf að lesa upp ritgerðirnar mínar (og ég hugsa alltaf hvað í fja.... þetta koma leikskólakennslu við, að geta skrifað og flutt fræðiritgerðir)  Hef engar upplýsingar fengið um hin 2 fögin nema bókalista.

Styttist í Reykjavíkurmaraþonið. Ég ælta að hlaupa 10 km, en hef soldið miklar áhyggjur af hnéinu mínu. Ætli ég endi ekki á að þurfa að ganga helminginn. Hef verið mjög dugleg að mæta í ræktina síðustu 2 vikur og skokkað 5- 6 km annanhvorn dag. Hef alltaf hætt að skokka þegar ég finn að hnéið er að fara kvarta, þó ég viti að ég gæti alveg pínt 5 km í viðbót úr því, og hnéið hefur bara hagað sér nokkuð vel, en í gær sagði það bara stopp, hingað og ekki lengra! Ætla að hvíla það alveg núna fram að hlaupi. Fór samt í ræktina í dag, en ákvað að hlaupa ekki neitt, fór í staðin í róðravélina og réri 6 km. Nú eru hendurnar með blöðrur og útplástraðar....Já, það er bara vesen að vera í þessari líkamsrækt, en það breytir því ekki að ég er samt búin að endurnýja árskortið mitt!

Annars er bara ekkert að frétta......

Hulda Rún er byrjuð að kúra hjá StarTrek safninu mínu, í dag var hún með koddan sinn og lagði hann þarna í skotið og lagðist svo ofaná hann, bara kózý :)

Engin ummæli: