Huldu gékk mjög vel í aðlögun hjá dagmömmuni. Hún segir að Hulda sé algjör engill og ekkert vesen á henni.
Hún hefur aldrei grátið þó hún sé skilin eftir hjá henni, enda er þessi dagmamma mjög vinaleg og tekur alltaf á móti henni með kossum og knúsi, og kveður hana líka með kossum og knúsi. Eins og er eru þær bara 2 hjá þessarri dagmömmu, Hulda og önnur stelpa sem er 10 mánaða.
Ég er byrjuð í skólanum og enn er bara það sem kallast nýnemavika og kennsla ekki byrjuð af fullum krafti. Byrjar ekki fyrr en á mánudag. Er samt búin með nokkur verkefni og búin að lesa það sem þarf að lesa fyrir næstu viku. Ég þekki að sjálfsögðu engan í þessum skóla og sé að margir nýnemar eru þarna í pörum, jafnvel 3 saman, sem þekkjast greinilega nokkuð vel frá því áður. Eins og er, er ég þessi sem sit bara ein. En það á allt eftir að breytast. Er búin að skrá mig í alla umræðu og vinnutíma sem staðsettir eru í skólastofum, en ekki á netinu, einmitt í þeirri von að kynnast einhverjum. Það er um það bil helmingurinn sem mætir í skólann, hinn helmingurinn hefur ákveðið að gera þetta í gegnum netið, í einutilfelli fara umræður fram á facebook.
Jæja... best að fara að sofa, skóli í fyrramálið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli