þriðjudagur, júní 04, 2013

Hulda Rún æfir skrefin sín

Hulda er búin að vera í strangri þjálfun..... labbiþjálfun. Bara 2 vikur í hátíð og 17 júní.  Þá var planið að hún væri byrjuð að labba......  (segi bara svona með þjálfunina....ekkert búin að vera svo ströng.....bara pínu)...

Alla vega æfir hún skrefin sín reglulega og er orðin ansi dugleg þó hún sé soldið völt stundum.

2 vídjó af henni. Var ekki í mjög góðu skapi þegar þetta var tekið samt.

Hulda Rún æfir skrefin sín
og
enn að æfa sig.

Fórum í sumarbústað með mömmu og pabba um helgina á meðan Helgi lék sér með víkingunum. Þar af leiðandi var engin myndavél með í för þar sem Helga fynnst nauðsinlegt að taka myndir af öllum hátíðum.
En það var bara gaman, fórum út, sulluðum í heita pottinum og komumst að því að það er engin vídjóleiga á Selfossi.

Engin ummæli: