þriðjudagur, janúar 21, 2014

Hulda Rún 18 mánaða skoðun

Hulda fór í sitt eftirlit í dag hjá hjúkrunarfræðingi og barnalækni.
Hún er nú orðin 84,4 cm og 11,54 kg og heldur alveg sínum kúrfum. Hún er voðalega fín og flott en eitthvað hafði hjúkkan áhyggjur af málþroskanum. Ég sagði henni að ég hefði sko engar áhyggjur, orðin eru byrjuð að hrúgast inn og hún skilur heilan helling. Hún er bara búin að vera að einbeita sér að því að klifra í gluggakistum og hoppa niður af stólum, ekkert var henni hrósað fyrir það! Hún sýndi líka lækninum alveg hvað hún er sterk þegar hann var að reyna að skoða hana, liðleikan í mjöðmunum og þess háttar.
Hún var heldur ekkert á því að leifa þessum kalli að þukla eitthvað á sér, vildi ekki sjá hlustunarpípuna og alls ekki liggja kjurr. Hún vildi bara fá að hlaupa um læknastofuna og skoða ALLT. 
Hún fékk svo bólusettningarsprautuna og var allt annað en sátt. Hún var þó fljót að jafna sig og vinkaði lækninum á leið út.
Næsta skoðun er svo ekki fyrr en eftir ár og þá er læknisskoðun og þroskamat. (nema ef málþroskin verður eitthvað hægur, þá fæ ég tíma eftir hálft ár)

sunnudagur, janúar 19, 2014

Húnbogi Bjartur 6 ára

Það hefur mikið gengið á síðustu daga. Húnbogi varð 6 ára þann 17. og hafði boðið öllum sínum vinum af leikskólanum og kennurunum líka til veislu. 33 börn og 5 kennarar mættu á leikskólatíma og stoppuðu hjá okkur í 1 og hálfan tíma. Boðið var upp á skúffuköku, djús og íspinna.
Spennan var mikil hjá Húnboga, hann hafði lengi talað um að hann langaði að bjóða krökkunum heim og sína þeim allt dótið sitt og loks var komið að því. Klukkan 13 hringdi dyrabjallan og samstundis heyrði maður hlægjandi og hlaupandi krakka æða upp stigaganginn með Húnboga í broddi fylkingar.......

 Ekki laust við að hjartað hamaðist soldið vegna kvíða.....

 allt.....

 allt......

 allt.....

ALLT.....

 allt var skoðað!

 Afmælisbörnin og framtíðar hjónakorn. Húnbogi Bjartur og Freyja Rut.

 Allstaðar....

 allstaðar.....

 ALLSTAÐAR.....

 allstaðar var borðað!

 Húnbogi bauð öllum upp á íspinna.


skór, úlpur og húfur....

Börnin voru spennt fyrir vopnunum

 Kennararnir voru líka með myndavél og settu inn á heimasíðu leikskólans.....

 Röð myndaðist þar sem tekin var mynd af einu barni í einu með sverðið hans Húnboga með sverðarekkan í bakgrunni, allar myndir fóru inn á leikskólasíðuna.

 Eftir mikið fjör var aftur haldið í leikskólann.

Þetta gékk rosalega vel og enda alvanir kennarar sem höfðu hemil á krökkunum.
Smá vídjó þar sem farin er yfirlitsferð yfir allan hópinn. Smella hér

Í dag var svo "aðal"veislan það sem gestirnir komu, svo segir Húnbogi allavega.

 Flottur 6 ára töffari

 Angry birds er aðalmálið í dag. Að venju gerði Elísabet aðalkökuna.

 Húnbogi fékk fyrstu sneiðina....

 .... og Hulda varð sármóðguð yfir að afmælisbarnið væri númer eitt!

 Hrafnkell og Húnbogi, enn að æfa sig að verða bestu vinir.

 Hulda orðin sátt með sinn skammt að kökum.

 Hulda á líka pínu afmæli í dag, hún er 1 og hálfs árs.

 Það er erfitt að taka hópmyndir af börnum...

 það verður bara að klippa út bestu hausana....

 og líma á nýja mynd.

Húnbogi skypar við afa sinn.

Húnbogi fékk óskagjöfina sína og tekið var smá vídjó. Smella hér.

Klukkan orðin miðnætti og Húnbogi loksins sofnaður, hátíðarhöldunum er þó enn ekki alveg lokið því á morgunn ætlum ég og Húnbogi að fara í bíó á mynd sem hann hefur spenntur beðið eftir. Skýjað með kjötbollum á köflum 2. Mig hlakkar líka til að sjá hana.....
Afmæliskveðjur.

mánudagur, janúar 06, 2014

Siðasta einkunn komin í hús, jólin búin og hversdagleikin handan við hornið......

...... langt síðan síðast, en engar fréttir eru góðar fréttir. Mynda veisla í vændum fyrir ykkur af börnunum yfir jólin og áramótin og svo fréttir af einkunnunum mínum.
Byrjum á einkunnunum..... Fékk 8 í talað mál og ritað og líka fyrir leikskólafræðina. Fékk 7,5 fyrir menntunar og uppeldisfræði og býst við að ég sé nokkuð sátt þó ég hafi verið með 8,5 í meðaleinkunn áður en lokaprófið kom..... en lokaprófið fannst mér bara asssskoti erfitt. Fékk 8,5 fyrir stóru ritgerðina sem ég endaði á að skila ein því ritgerðarfélaginn minn stóð sig ekki (eins og hefur komið fram nokkrum sinnum áður) og eftir að hafa leitað ráða hjá kennaranum skilaði ég bara ein. Var mjög sátt með ritgerðareinkunnina og fékk mjög góða umsögn. Eftir að lokaprófunum lauk þann 11 des hófst vinnan á fullu, vann alla daga til jóla (jább, líka sunnudagana) og ég átti mér satt að segja lítið líf utan vinnunnar. Milli jóla og nýárs vann ég líka og eftir áramótin. Mun vinna núna alla daga fram að skóla sem byrjar 13 Jan, er svo búin að auka við mig vinnuna með skólanum en ég mun nú vinna eftir hádegi á föstudögum og alla laugardaga (en fæ að taka frí ef mikil verkefna vinna er í skólanum. Þau fög sem ég mun taka í skólanum á vorönninni eru Leikskólafræði II - Leikur, samskipti og skráning, Hreyfing og leikræn tjáning, úti og inni og Aðferðafræði og menntarannsóknir. Það er orðið ansi flókið greynilega að sníta og skeina......

En nóg af mér... hér koma Húnbogi Bjartur og Hulda Rún....!!!

 Hulda Rún og Húnbogi Bjartur óska ykkur að sjálfsögðu að liðin jól hafi verið gleðileg og að nýja árið verði ykkur gott..... þeir sem ekki fengu koss geta notið hans hér......

 Í byrjun desember fór Húnbogi einn laugardagsmorgunn með leikskólahópnum sínum og söng með kórnum sínum

 Þau sungu nokkur lög sem þau voru búin að vera æfa en ég var því miður að vinna og missti af dýrðinni.....

 Í desember var líka farið í bað, bæði alvöru og þykjustu.....

 Fyrsti jólasveinninn kom og gaf í skóinn, Húnbogi vildi gefa honum mandarínu og þetta blasti við honum um morgunninn.....
 Jólamyndin 2013. Erfitt að stilla Huldu upp og fáar góðar myndir af þeim saman því miður.

 Húnbogi orðin spenntur...

 Beðið eftir jólunum.....

 Eyddum aðfangadagskvöldi í Mosó þar sem Elín og hennar fylgihlutir voru líka.

 Hulda og Alfreð að kynnast....

 Húnbogi og Írena voru spennt fyrir öllum pökkunum.....

 .... en Hulda lét sér fátt um finnast og fiktaði aðeins í tökkunum.....
 Aftur á móti var hún soldið spennt fyrir piparkökunum.

Við tókum aðeins með okkur gjafir þeirra sem voru með okkur um kvöldið en skildum hinar eftir heima. Þegar við komum heim um 10 leitið voru börnin háttuð (í ný náttföt að sjálfsögðu) og Hulda fór beint að sofa.
Húnbogi fékk aftur á móti að taka upp alla pakkana sem eftir voru.

Jólanótt.........

 Húnbogi tekur upp pakkana heima.

 Húnbogi var spenntastur fyrir þessum gjöfum. Hann var búin að láta sig dreyma um þennan kastala í næstum ár.

 Ég fékk að vera yfirkubbaréttari en Húnbogi sá um sjálfa smíðina.

 Hulda að máta gamla dúkkurúmið mitt

 Er þetta sæng eða koddi????

 Hulda heilsar upp á heimilsjólavininn.....

 Hulda Rún fékk dúkkuvagn frá Þuru langömmu og arkar með hann hvort sem hann er tómur eða ekki um alla íbúð.

 Þetta er stundum soldið streð....

 Það sagði enginn að það væri auðvelt að vera einstæð dúkkumóðir.

 Eftir þreytandi göngutúra með dúkkuvagn verður maður bara doldið sibbinn.

 Húnbogi skoðar spennandi hluti í nýju smásjánni sinni frá ömmu og afa á Álftanesi.

 Áramótinn.... Þau voru haldin hér mörgum til mikillar gleði, kannski aðalega mömmu og pabba þar sem þau fengu að njóta æðislegrar matseldar minnar.....

 Áramótasistkyn
 Hulda horfði á skrítnu ljósin út um gluggan

 Það er alltaf stuð á áramótum....

 Hulda Rún horfir á pabba sinn og Húnboga skjóta upp nokkrum rakettum úr garðinum....

 .... en fékk sjálf að prófa nokkur stjörnuljós á svölunum og fannst þau KÚL.

 Á nýársdag á Álftanesi. Hulda les fyrir Huldu Rúnu.

 og Elísabet fyrir Húnboga.

 Nýársstuðstelpa.

Amma og Afi á Álftanesi spila á jólagjöfina frá Hlyni og Helgu til Húnboga.

Svona var þetta nú í hnotskurn. Þarf náttúrulega ekki að taka fram að það var góður matur og mikið stuð.