
Það voru svo sannarlega gerð innkaup í dag. Keyptum öryggishlið til að setja fyrir eldhúsið...sparar okkur heilmikið vesen með alla þessa skápa og skúfur og eldavél og gólf sem leiðinlegt og erfitt er að þrífa. Fórum líka í Blómaval og keyptum greni og skraut til að búa til aðventukransinn. Kíktum aðeins í bónus, Ikea og Byko (bónus er skrifað með litlum staf því það hefur ekki unnið sér inn að vera með stóran!!!)
Þegar heim var komið fór ég að föndra jólagjafir. Það vildi nú ekki betur en svo að pásu varð að gera á föndrinu því fljóttþornandi og ofursterka tonnatakið lak yfir hendina á mér og límdi saman vísifingur og baugfingur. Eftir hálftíma vesen við að reyna losa með hníf, nál og svipuðum verkfærum var hringt í vitrari og reyndari menn í þessum málum, sem hafa þó aldrei lent í svipuðum aðsæðum að ég held. Asiton var svarið. En hún Hlín litla leggur það ekki í vana sinn að lakka á sér neglurnar og finnst því ekki nauðsinlegt að eiga, að svo er virðist, hlut sem ætti greinilega að vera til á öllum heimilum þar sem börn 29 ára og yngri búa. Var þá brugðið á það ráð að banka á næstu íbúð, útskýra tonnataksslysið og fá lánað eitt stykki asiton!
Eftir hálftíma í viðbót með asitonsullið tókst að rífa fingurnar í sundur án þess að mikill skaði yrði á húð og sál. Vil taka það fram að það var öll hliðin á puttunum sem var límd saman ekki fingurbroddarnir.
Ekki lærði maður þó af reynlunni. Klukkutíma síðar tókst Hlínsunni litlu að líma tvo fingurbrodda og járnstykki saman en til að halda þeirri litlu reisn sem var eftir var ekki bankað á næstu íbúð(asitoninu hafði verið skilað) og bara rifið. Fór góð húðflís með í þetta sinn og mun einn heppinn jólagjafarþegi fá hana með í pakkanum sínum. Eftir þetta fór Helgi og náði í latexhanska sem voru í kassa með um það bil 100 öðrum latexhönskum inn í vaskahúsi og lét mig hafa!!!!!
Þetta verða ekki jólagjafir sem fást fyrir péninga, því í þær hafa verið lagðar blóð, sviti, tár og húðflögur.....