miðvikudagur, janúar 21, 2009

12 mánaðaskoðuninn að baki

Í gær fórum við í skoðun og sprautu og mældist Húnbogi 9,09 kg og 78 cm.
Ég aftur á móti mældist 71 kg og 186 cm. Fékk samt einga sprautu. Enda fær maður ekki sprautu í 30 ára skoðunn. Reyndar er enginn 30 ára skoðunn.....vildi bara fá að vera með.
Ef ég færi í skoðun myndi líklega ekki mikið mælast nema lækkandi greindarvísitala og verri sjón.

Húnbogi er kominn með leiðindar ósið við matarborðið. Taka matinn út úr sér og henda á gólf eða borð. Í fyrradag var fyrst sagt NEI við hann út af þessu. Og sá var ekki glaður..... og heldur betur móðgaður. Gekk illa að mata hann eftir þetta og mikið grátið, með ekkasogum og tilheyrandi. En iss...vorkenndi honum ekki neitt. Ef ég þarf að borða þetta þá þarf hann þess líka. Þetta var fiskur og kartöflur stappaðar í smjöri. Ætla að reyna að venja hann af þessu strax. Nú verður það bara NEI NEI NEI. Og engar sérþarfir og hana nú. Bara fólk á þrítugs aldir hefur unnið sér það inn að vera með sérþarfir.

En fyrir utan þetta er hann nú alltaf svo blíður og góður.... eða næstum. Ef hann er rosa kátur og vill knúsa mann og slefa á hann það til að bíta....fast....held að hann sé samt bara að reyna að vera góður litla greyið.

Vinnan gengur sinn vanagang....mér hundleiðist og finnst allt of lítið fyrir mig að gera og er strax farinn að sakna frísins sem ég var í og er bara að spá í að búa til annað barn og koma mér í annað frí sem fyrst!!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hey.. farðu í fiskinn..það er nóg að gera í fiskinum.... :D
hehe...


kv.guðný ;P

Nafnlaus sagði...

Ferðu samt ekki bráðum að minnka? ÞAð gerist með aldrinum.

Hrafnkell er annars sérfræðingur að framkalla NEI frá foreldrum og öðrum, svo hann gæti alveg kennt Húnboga hvernig á að ignora þannig hluti. Hann gólar bara NEI á móti núorðið og setur í brýrnar.

Já og Hrafnkell er að verða 2 ára og hann grýtir ennþá mat í gólfið og í okkur bara því það er gaman.

have fun

kv.sigga