miðvikudagur, ágúst 28, 2013

Skólablús

Huldu gékk mjög vel í aðlögun hjá dagmömmuni. Hún segir að Hulda sé algjör engill og ekkert vesen á henni.
Hún hefur aldrei grátið þó hún sé skilin eftir hjá henni, enda er þessi dagmamma mjög vinaleg og tekur alltaf á móti henni með kossum og knúsi, og kveður hana líka með kossum og knúsi. Eins og er eru þær bara 2 hjá þessarri dagmömmu, Hulda og önnur stelpa sem er 10 mánaða.
Ég er byrjuð í skólanum og enn er bara það sem kallast nýnemavika og kennsla ekki byrjuð af fullum krafti. Byrjar ekki fyrr en á mánudag. Er samt búin með nokkur verkefni og búin að lesa það sem þarf að lesa fyrir næstu viku.  Ég þekki að sjálfsögðu engan í þessum skóla og sé að margir nýnemar eru þarna í pörum, jafnvel 3 saman, sem þekkjast greinilega nokkuð vel frá því áður.  Eins og er, er ég þessi sem sit bara ein. En það á allt eftir að breytast. Er búin að skrá mig í alla umræðu og vinnutíma sem staðsettir eru í skólastofum, en ekki á netinu, einmitt í þeirri von að kynnast einhverjum. Það er um það bil helmingurinn sem mætir í skólann, hinn helmingurinn hefur ákveðið að gera þetta í gegnum netið, í einutilfelli fara umræður fram á facebook.
Jæja... best að fara að sofa, skóli í fyrramálið.

mánudagur, ágúst 19, 2013

Dagmamma og skóli

Jæja... Nú er sumarfríið búið, Húnbogi byrjaði á leikskólanum 8 ágúst og Helgi er líka byrjaður að vinna. Ég og Hulda aftur á móti höngum saman í fríi alla daga. Reyndar er Hulda að byrja í aðlögun á morgunn hjá dagmömmunni sinni á morgunn, en það verður bara klukkutími, og ég held meira segja að ég fari ekki einu sinni neitt á meðan......
Ég byrja svo í skólanum næsta mánudag, smá kvíði í mér, en það lagast örugglega um leið og ég er byrjuð. Ekki hjálpar að kennarinn við fagið "Talað mál og ritað"  segir að þetta sé eina fag sé á við 7 og hálfan vinnudag í viku! Allavega 2 ritgerðarskil í viku og jafnvel munnleg verkefni líka..... úff. Þetta er mín versta martröð þar sem verkefnin ganga út það að flytja ritgerðir vel, með augnsambandi og góðri líkambeytingu og skrifaðar ritgerðir þurfa að vera rétt stafsettar. Féll ALLTAF á stafsetningu í grunn og menntaskóla, en ég vona bara að feymnin hafi elst eitthvað af mér og ég stami ekki bara og skjálfi þegar ég þarf að lesa upp ritgerðirnar mínar (og ég hugsa alltaf hvað í fja.... þetta koma leikskólakennslu við, að geta skrifað og flutt fræðiritgerðir)  Hef engar upplýsingar fengið um hin 2 fögin nema bókalista.

Styttist í Reykjavíkurmaraþonið. Ég ælta að hlaupa 10 km, en hef soldið miklar áhyggjur af hnéinu mínu. Ætli ég endi ekki á að þurfa að ganga helminginn. Hef verið mjög dugleg að mæta í ræktina síðustu 2 vikur og skokkað 5- 6 km annanhvorn dag. Hef alltaf hætt að skokka þegar ég finn að hnéið er að fara kvarta, þó ég viti að ég gæti alveg pínt 5 km í viðbót úr því, og hnéið hefur bara hagað sér nokkuð vel, en í gær sagði það bara stopp, hingað og ekki lengra! Ætla að hvíla það alveg núna fram að hlaupi. Fór samt í ræktina í dag, en ákvað að hlaupa ekki neitt, fór í staðin í róðravélina og réri 6 km. Nú eru hendurnar með blöðrur og útplástraðar....Já, það er bara vesen að vera í þessari líkamsrækt, en það breytir því ekki að ég er samt búin að endurnýja árskortið mitt!

Annars er bara ekkert að frétta......

Hulda Rún er byrjuð að kúra hjá StarTrek safninu mínu, í dag var hún með koddan sinn og lagði hann þarna í skotið og lagðist svo ofaná hann, bara kózý :)

laugardagur, ágúst 03, 2013

Bústaðarferð.

 Írena og Alfreð gistu hérna eina nótt og það gekk bara nokkuð vel. Stóru börnunum hafði verið lofaður sleikjó en litlu börnin tóku ekki annað í mál en að fá líka!

 Huldu fannst sleikjóinn æði, fékk samt ekki að klára hann og var komin með sykurhúðað hár sem stóð út í allar áttir eftir smástund.


 Ég og Húnbogi skelltum okkur í bústað til Siggu og Hrafkels, þar sem foreldrar Siggu eiga bústað nálægt Geysi. Fyrsta daginn (gleymdi að sjálfsögðu að hafa myndavélina) var farið að skoða Geysissvæðið og töfravatnið (Strokk). Húnbogi fannst hann æði og sá hann gjósa þrisvar sinnum. Seinna um daginn fórum við að læk sem rennur um landið og þar er smá hylur. Þangað skelltu Húnbogi og Hrafnkell sér og þó að vatnið væri frekar kallt fóru strákarnir alveg í axladýpt.... mér til mikillar undrunar, hélt að Húnbogi væri of mikil skræfa, en svo var greynilega ekki. Þeir hlýjuðu sér svo í heitapottinum eftir svaðilförina.


 Um kvöldið skelltu þeir sér á hestbak og þá er eins gott að hafa góðan vin til að hjálpa til við að setja öryggisbúnaðin á.....

 Húnbogi berbakt á honum Atlasi og Hrafnkell teymir.

 Fundum þessa stórmerkilegu lirfu..... ótrúlega litrík og sæt, en eftir að hafa vafrað á netinu til að sjá hvað verður úr henni er það bara brún mölfluga..... 

Fórum í gönguferð í Haukadalsskóg þar sem við lifðum af ævintýri.... þetta var nefnilega álagaskógur, vindurinn kunni að tala og lækirnir voru eitraðir. Svo voru líka gildrur út um allt sem breyttu fólki í tré!

 Fórum þennan veg sem er gerður fyrir fatlaða....

 Smá tjörn það sem steinum var kastað af lífi og sál.

Kveðjustund.

Gistum þarna 2 nætur. Fórum svo heim og ég fór með Huldu í 1árs skoðun. Hún er nú 78,1 cm og 9,6 kg. Heldur sinni hæðarkúrfu, en dettur örlítið niður í þyngd, enda ekki búin að borða vel upp á síðkastið.